Merki
UpphafssíðaGreinarSkilgreining á gentlemanSpakmæliTenglarLeikfang mánaðarinsPlakat vikunnar
herramenn.net
 
Skoðanir
Ertu búin að skipuleggja vetrarfrí?
 
Vísan

Ef að kraftur orðsins þver

á andans huldu brautum :

Gefa á kjaftinn verðum vér

vorum skuldunautum.

  

   Káinn 

Innskráning





Gleymt lykilorð
Saga af hatti

Hattar eiga sér langa og merka sögu og telja sagnfræðingar á sviði klæðaburðar að sennilega hafi hattur af einhverju tagi verið sú flík sem frum-karlar settu upp næst á eftir lendaskýlunni til að hlífa sér við brennandi sól eða ausandi regni.

Hatturinn varð snemma stöðutákn og allir hattar bera skilaboð til umheimsins, t.d. um það hversu hátt viðkomandi teljist kominn í þjóðfélagsstiganum (og auðvitað er ekki alltaf að marka þessi skilaboð fremur en önnur!) eða hvort hann sé í vinnu eða bara að slaka á.

091.jpg
Meira...
 
Yfirskegg er höfuðprýði

sirclaudemacdonald.jpgFátt prýðir karlmannsfésið meira en verklegt og vel snyrt yfirskegg og hefur svo þótt um langan aldur. Yfirskeggið er alls staðar í mjög miklum metum en það er þó nokkuð mismunandi hversu miklar þær metur eru – í Albaníu og þar grennd má til dæmis segja að ást og áhugi manna á yfirskeggi jaðri við þráhyggju.

 

Þannig eru t.d. hvorki fleiri né færri en 27 orð notuð yfir yfirskegg af ýmsu tagi í albönsku; t.d. ‘madh’ sem er gróskumikið yfirskegg, ‘holl’ er mjótt yfirskegg, ‘dirs ur’ nýsprottið yfirskegg, ‘varur’ er yfirskegg sem vex niður en ‘kacadre’ þegar skeggendarnir vísa upp. Loks er ‘rruar’; að hafa rakað yfirskeggið burt og þykir sennilega ekki góð latína (eða öllu heldur albanska)!

Meira...
 
Kynvillur

kidney.jpgHeilbrigðismál eru engin gamanmál fremur en kynjamál, jafnréttismál og fleira því skylt. Nú hefur króatískur skógarhöggsmaður höfðað mál á hendur heilbrigðisyfirvöldum vegna aukaverkana í kjölfar aðgerðar sem hann gekkst undir. Kveðst hinn 56 ára gamli Stjepan Lizacic frá Osijek sæta háði og spotti eftir aðgerðina, og kemur það ekki til af engu.

 

 


Málavextir eru þeir að hr. Lizacic þurfti á nýju nýra að halda. Var grætt í hann nýra úr konu og er óumdeilt að sú líffæragjöf bjargaði lífi hans. Eftir aðgerðina komu hins vegar í ljós heldur óskemmtilegar aukaverkanir sem hr. Lizacic hafði ekki verið varaður við fyrirfram og á því byggir hann mál sitt.

Meira...
 
Kynlífshneyksli og frægur stóll

Þokkadísin Christine Keeler fæddist hinn 22. febrúar árið 1942. Nafn hennar er órofa tengt hneykslismálum sem skóku Bretland snemma á sjöunda áratugnum. Á meðan þau voru að komast í hámæli sat Keeler einnig fyrir á ljósmynd sem átti eftir að verða ein af táknmyndum 20. aldarinnar.

Kvikmyndin Scandal (1989) þar sem Joanna Whalley lék Keeler byggist á umræddu hneyksli, og saga Keeler hefur orðið kveikja að sönglögum auk þess sem ljósmyndin fræga hefur oft verið stæld með fyrirsætum á borð við David Frost, Dame Edna og Homer Simpson.

chk.jpg

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Christine Keeler og stóllinn fræ
Þetta er þó ekki frægasta
'pósan' úr myndröðinni.

Meira...
 
Skilgreining á gentleman
Leikfang mánaðarins
 
©2007 Hugsa sér !